Jose rápido

Heyy Duuude, AAAAwsome duuude.

miðvikudagur, nóvember 03, 2004

loksins...... Það má nú segja að það hafi verið nokkuð notarlegt þegar Einar setti Glerið yfir búrið okkar, þar sem það er orðið svo kalt. Mér líður best þegar það er svona 22°C út í veðri og þess vegna við það að loka er allt annað líf í búrinu hjá mér. svo er líka hitaljósið alveg að skila sínu. Ég hef verið að þjálfa Maríu uppá síðkastið, hún er svolítið óörugg hérna ennþá, en ég er öllu rólegri. Í hvert skipti sem einhver kemur inn í stofuna stekkur hún til eins og gormur og of eru svo mikil læti í henni að ég bara hrekk í kút. Frikki frændi var að bæta inn link á mig í dag sá ég. þannig að það er e-ð að spyrjast út þetta skjaldbökublogg mitt. jæja ætla að fara að leggja mig.