Í dag fékk ég heimssókn. Ung dama stakk sér ofan í búrið til mín og er enn. Hún er nokkuð sæt og held ég að okkur líki vel við hvort annað. Ég er svolítið stærri en hún og í allan dag hef ég sýnt henni að það er ég sem ræð hér í þessu búri, samt var ég nú ansi forvitinn og var alltaf að nudda mér uppvið hana sama hvert hún fór. Reyndar var nú Einar að svekkja mig svolítið í dag þegar hann sagði mér að hann hafi talað við enskumælandi snilling í dýrabúðinni og hann hafi sagt honum að það væri ekki séns að sjá hvort kynið við erum fyrr en við erum orðin mun stærri. þá ætti ég að vera aðeins lengri en hún og ég með lengri klær. Ekki það að þið hafið einhvertíman verið að efast um kyn ykkar, en þið ættuð nú að geta pælt í því hvernig mér líður. ef þið vissuð ekki hvort þið væruð karl eða kona. jæja ég ætla að fara að búa um skvísuna mína. Hérna er ein mynd af okkur rétt eftir að hún kom inn. Ég var aðeins að reyna að fá einn koss.
miðvikudagur, október 20, 2004
mánudagur, október 18, 2004
Ég er voða hress þessa dagana. Ekkert smá sáttur við nýja heimilið mitt, en Einar var einmitt að endurbæta húsið. Bjó til þessa fínu eyju til að chilla á og svo setti hann saman svona brú fyrir mig til að komast uppá hana. Ég veit ekki alveg hvað hann er að pæla, það er orðið svolítið lant síðan hann sagðist ætla að fara að kaupa kellingu handa mér til að hanga með, en en sem komið er ég bara einn á brúinni. Ég læt fylgja með hérna 2 myndir af mér þar sem ég er annarvega að borða lirfu og svo hinsvegar að sýna ykkur nýja systemið mitt. Endilega reynið að koma vitinu fyrir honum og látið hann fara og ná í eina Turtlu handa mér.
fimmtudagur, október 14, 2004
þriðjudagur, október 12, 2004
föstudagur, október 08, 2004
áta
úff hvað mér er búið að vera íllt í maganum síðustu dag. veit ekki hvað það er.
Held að það hafi verið Steinasteikin sem einar gaf mér um daginn. Núna læt ég mér næga að éta bara þessar vondu lirfur sem hann gefur mér alltaf á morgnana. Það er frekar ógeðslegt þegar hann kemur ný vaknaður á brókinni og ég þarf að horfa á hann eins og hann er nú illa vaxinn greyið. Svo kemur hann og sturtar úr dollunni einhverjum 100 lirfum þó ég þurfi bar um 8 stk. til að lifa daginn. Held að hann sé að reyna að láta mig líta út eins og hann sjálfur. Æ hann veit ekki betur greyið.
Þau voru að fara út áðan með einvherri sem ég kannaðist ekki við, en ég veit ekki hvenær þau koma heim þannig að það er best að ég fari bara að drífa mig ofaní búr svo þau gruni ekkert. Hugsiði fallega til mín.
Jose.